Ó það getur verið varasamt að gefa fólki sem leiðist í vinnunni lyklana að dagbókunum. Aldrei að vita hvað getur endað þar inni...
Fyrst er það tilkynningaskyldan. Fangor hefur verið frá tölvu alla þessa viku og sér ekki fram á að komast í snertingu við slíkt tæki fyrr en eftir helgi - sennilega á þriðjudaginn. Þeir sem vilja elta Fangor uppi um helgina verða vinsamlegast að leita í fjöllum og dölum á Vestfjörðum. Þar sem Fangor er ekkert ef ekki skyldurækinn var mér treyst fyrir lyklunum að sýndarríkinu og sagt að fara vel með.
En nú hafa lesendur fengið sínar upplýsingar og hvað skal þá gjöra? Hmm...
Á meðan ég velti vöngum yfir þessu nýfengna valdi vil ég bara biðja þig Fangor minn um að njóta helgarinnar og reyna að sprikla soldið í sjónum ef veður leyfir.