gott að vita að einhverjir söknuðu mín. sérstaklega ber að þakka yfirnorn fyrir umsjón og myndatökur á meðan ég var frá.
síðasta vika fór í að leika spýtukall, þar sem ónefndur aðili kippti mér upp á laugardagsnóttina síðustu og beyglaði mig eitthvað til í fagnaðarlátum yfir að sjá mig. bakið á mér tognaði svona líka snyrtilega, og ég lá útaf meira og minna í nokkra daga. nefni engin nöfn. (en næst þegar þú knúsar mig snorri minn verður að passa betur upp á litlu konuna..:þ )
eyddi hvítasunni í frábæra ferð með verðani eiginmanni mínum og eiginkonu okkar. ferðasagan verður færð inn í kvöld.