viðburðarík helgi að baki. vinir mínir verða unnvörpum þrítugir, á meðan ég eldist ekki um dag. stórmerkilegt það.
fékk skemmtilega heimsókn í gær þar sem 2 menn duttu inn og fóru með gamanmál. raritet, elfa, jóngje og fangor hlógu dátt, og sjá fram á skemmtilega tíma þann 26. júní, en þá verður skemmtiprógrammið sauðkindin frumflutt fyrir almúgann. nánari upplýsingar um það fljótlega.
svaf um 3 tíma í nótt, vaknaði korter í sjö og reif mig inn í ræktina. ( ég er hetja! ég er hetja! ) fór í langa sturtu, munaði minnstu að ég sofnaði. (hefur gerst áður, ég er eina manneskjan í minum vinahóp sem hefur afrekað að sofna í sturtunni ) er búin að þamba kaffi síðan níu, stoðar lítt, ég sé rúmið mitt í hillingum. beinustu leið heim eftir vinnu, borða smá og sofna. fast.
á erfitt um blogg þessa dagana sökum vinnu. stel tíma þar sem ég get. mig vantar einhvern skramban í tölvuna mína heima til að hún virki. líklega best að biðja um aðstoð hjá tölvunörðunum sem maður þekkir. aftur. *grunt*