heldur voru draumarnir blautir í dalnum í gær. vona að við sleppum fyrir horn á general í kvöld. ekki viss um að frumsyningarformið verði upp á marga fiska ef svo heldur sem horfir. nema náttúrulega við breytum þessu í
" shakespeare-underwater! " sýningu.....hmmm? syndandi bokkar milli hríslnanna sem þykjast vera tré.....skemmtileg pæling. legg til að við sýnum eina sýningu í árbæjarlauginni, bara til að prófa..:þ
miða má panta í síma 848 0745 eða á netfanginu synir@li.is. miðaverð er aðeins 500 krónur. Aðeins verða sýndar verða tvær sýningar í Elliðaárdalnum, sú fyrri laugardaginn 26. júlí kl. 16:00 og sú síðari sunnudaginn 27. júlí kl. 20:00.
í ótengdum fréttum er mest lítið. partýplön fyrir 16. ágúst eru komin vel á veg. betur má þó ef duga skal, næsta vika verður sennilega undirlögð af niðurneglingum og fyrir-horn-reddingum. svo nenni ég eiginlega ekki að pæla í þessu meir, velti restinni á veislustjóra vorn .