hormónasveiflur dauðans eru að fara með mig. ég ýmist rýk upp í geðsýkiskasti, fell saman af þreytu eða grenja yfir örlögum heimsins. svei því,. ekki það sem vantar þegar frumsýning er á næsta leyti. vesalings leikfélagarnir mínir. til að bæta gráu ofaná svart hefur minn betri helmingur flogið af landi brott í land sumarsins. vonandi skemmtir hún sér hið besta, á meðan ég rigni niður í elliðarárdal...
í ljósi ofangreindra aðstæðna er því gaman að minnast á verkefni kvöldsins: ég fæ að snoða 3.karlmenn. með bartskera,skæri og sköfu að vopni. þvílíkt gaman, hæ og hó! (vonum bara að engum þeirra detti í hug að stríða mér...:þ) | fangor 16:50