jahér. allt í einu kominn fimmtudagur. það er klikkað að gera hjá mér í vinnunni, og þegar henni lýkur leggst ég beinustu leið í sófann minn og sofna yfir sjónvarpinu. nett fráhvörf farin að gera vart við sig, það er óþægilegt að sjá klukkuna verða 8 og það er ekki búið að sminka, enginn búningur, engin sýning.....
gerði undantekningu frá sófakartöflustatus í gærkveldi og hitti föður alheimsins. við spáðum í lífið og tilveruna um stund, sem að vanda var einkar ánægjulegt.
sakna raritetsins míns ósköp mikið, en nú styttist óðum í heimkomu hennar og krílisins. vona að þær hafi það sem best.
ef einhver vill leika við mig á morgun þá er ég í fríi. skipulagt hefur verið vondumyndakvöld um kvöldið. innipúkahátíð verður á vesturgötunni yfir helgina fyrir þá sem ekki nenna verslunarmannhelgarveseni þetta árið.