og....þá er faðir alheimsins búinn að koma sér fyrir á livejournal. ( eins og það sé eitthvað fínt að vera með soleiðis....dö..;þ ). það var nú eins gott, þar sem ég hitti hann alltof sjaldan og kemst ekki með honum til akureyris og egilsstaða um helgina. gott eiga skotta, halldóra og sigga lára að leika við snorra og steina á föstudaginn.....*andvarp*
þess í stað mun ég leggjast í líkamsvinnu og karakterþróun um helgina, búa mér til bokka og festann áður en ég fer á 4 daga sirkus/stomp/fönk/magadansnámskeið á seyðisfirði......húrra fyrir því. eftir það er vika í rennslum og fullnaðaræfingum, svo frumsýning 27 júlí ( að mig minnir) miðapantanir teknar niður hér, ef vill. hinir síðustu verða frystir!
mér skilst að vinkonur mínar séu að plotta gæsapartý um helgina. vei, ó vei mér aumri. hélt alltaf að ég væri svanur. eða næturgali. fálki jafnvel? | fangor 13:35