ætlaði að liggja í sófanum í gær, og vera svona almennt ónýt. fékk símhringingu og var dregin á eyrunum upp á næsta bar þar sem ofurdívan andrea gylfa var með tónleika ásamt yngri jasselítu landsins. þessir tónleikar voru tær snilld, fullt af lögum sem ég hef ekki heyrt andreu taka áður. það er fátt betra til lækninga en góðir tónleikar. skemmst er frá því að segja að fangor sveif heim. hér er til dæmis sænsk samba:
svo mætti einhver ofsalega sætur hörundsdökkur maður (því miður verða það karlmenn landsins sem geta glaðst yfir honum) og tróð upp í lokalaginu með gyðjunni. þau eru víst að fara að syngja saman í söngleik sem verður settur upp í kring um gay pride í loftkastalanum, heitir að mér skilst ain't misbehaving og er byrjað að selja miða. þeir sem telja grís ekki til tónlistarviðburða ársins ættu að tryggja sér miða sem fyrst í loftkastalanum, sýningar verða þéttar og seljast fljótt upp. þetta verður frábært!