vá, þvilík helgi! raritet , ásta og heiða, takk fyrir mig, ég elska ykkur allar! þeir sem mættu til að gleðjast með mér fá líka bestu þakkir fyrir skemmtunina. sérstaklega ber að þakka elvuálfi sem mætti sárlasin og hélt uppi geðveiku stuði eins og sést hér sumir gestirnir virðast reynar hafa verið í annarlegu ástandi:þ
fangor fékk sumsé gæsapartý um helgina, sem endaði í partýi hjá leikfélaginu mínu og leikfélagi hafnarfjarðar. eins og sjá má hér fannst minns gaman. hver getur svo toppað það að sitja á hafnarbakkanum klukkan 1 á laugardegi og éta hákarl og svolgra frosið íslensk brennivín með? íslenskir karlmenn hvað. við fengum öll rokkstigin..:þ