það hefur ýmislegt borið til tíðinda í herbúðum fangors síðustu vikurnar. ber þar fyrst að nefna að ég hef yfirgefið bókaverslunina góðu. þarf að finna mér nýja og skemmtilega vinnu fljótlega, hugmyndir eru vel þegnar. búið að lauma að mér að sækja um á mogganum. það er ekki vitlaus hugmynd.
ég fór að sjá sirkus hjá félögum minum í hugleik. jahá, segi ég nú bara.
kemst í tölvu hjá litla bróður, nýtt netfang verður tekið í gagnið fljótlega. verð í skipalagsvinnu með honum næstu dagana, systkinateam dauðans hefur á stefnuskránni að taka yfir heiminn. hægt og örugglega. mwuahahaha...
annars ætti ég auðvitað að nota þennan tíma til að rækta ferill minn sem rokkstjarna og súpermódel. hef bara ekki haft tíma til að sinna þessu undanfarna mánuði. betur má ef duga skal. ætti líklega að fjárfesta í gítar. eða bassa. hmmm.
stompgrúppan er bókuð vel fram í tímann. nokkur gigg fastsett inn á dagskránna, gætum svosem alveg þegið fleiri. hver vill og vill? bjóðum einnig upp á námskeið, gegn vægu gjaldi að sjálfsögðu :þ
annars er gott að lifa. vor í lofti, nýtt tímabil að hefjast. vér lifum á áhugaverðum tímum. | fangor 11:23