drottinn minn hvað mér leiðist! ef einhvern vantar eitthvað að lesa, nú eða langar í spjall um daginn og veginn þá endilega lítið við hjá mér í vinnunni milli 6:30 og 9 næstu 2 daga. það virðist sem jafnvel túristinn láti sig hverfa á þeim tíma og ekki margt við að vera. á móti kemur að hver kúnni fær meiri tíma og athygli; í dag hefi ég til dæmis skrifað upp 2 mataruppskriftir fyrir ferðamenn, lambalæri a la míns eigins og plokkfisk. auk þess hef ég teiknað upp helstu gönguleiðir og áhugaverða staði á austurlandi inn á kort, lýst kostum og göllum míns gamla héraðs og þurrkað af hillum. bara 2 dagar í frí... | fangor 20:42