helst ber til tíðinda að ég hef fyllst útþrá. þá á ég ekki við fara til útlanda- sýkina sem grípur mig reglulega, heldur þarf ég að leggjast út í náttúruna og sofa þar. og það er sko bara víst hægt að líta á garðinn hans steina sem óbyggðir. nóg af trjám og grasi. verst að það morar allt í unglíngi þarna í kring, en það eru þó ekki mýflugur....
þarf nauðsynlega að losna við þetta hús úr bakgarðinum mínum til að við getum farið að búa til alvöru garð í stað þessa malarplans þarna. eða kannski ég ætti bara að kaupa mér nýjan íverustað, með garði? | fangor 10:44