hef legið undir ámæli fyrir skrifleti. játa á mig þær sakir. hef einfaldlega ekki haft nennu til að setjast niður fyrir framan ókunnar tölvur.mín er nefnilega ennþá í fóstri hjá kisa. og nei ég nenneggaðsækjanaþvíþáþarfégaðendurskipuleggjaheiltherbergi, betra að eyða þessum fáu sumardögum sem birtast í útiveru.
við hjónakornin brugðum okkur í tveggja vikna ferð til spánar á dögunum, sannfærðist þar enn frekar um að ég er gastronomískur evrópusambandssinni. og ekki orð um það meir.
sumarið er að verða nokkuð vel bókað varðandi námskeið og tónleikahald í stompinu, en við tökum þó að okkur fleiri verkefni fyrir hóflega greiðslu *hóst,hóst*
annars er gaman að lifa. frí á morgun. djamm á kaffi vín í kvöld, hraunarar leika fyrir dansi. þynnka í rigningunni á morgun, það er við hæfi á þjóðhátíðardaginn er það ekki? | fangor 20:53