það fór þó aldrei svo að leiðin lægi ekki aftur til trékyllisvíkur. í þetta sinnið munu hraunverjar halda gleðidansleikinn mikla, laugardagskvöldið 3,júlí. þeir sem ekki sáu sért fært að koma með í kalkferðirnar góðu geta nú notað tækifærið og sótt hinn árlega dansleik ungmennafélags árvíkur. það sem þarf til ferðarinnar er bifreið sem þolir utanmalbiksakstur, og almennur viðlegubúnaður. ferð mín og minna mun hefjast á föstudeginum, vér munum eyða nótt í djúpuvík að vanda. ef einhverjum hugnast að gera slíkt hið sama er hægt að tjalda þar eða panta gistingu á hótel djúpuvík. hvet ég landa og lýð eindregið til að rífa upp ferðaskóna og koma með, það er ekki á hverjum degi sem hægt er að segja: ég var á balli í trékyllisvík um helgina...auk þess sem náttúrufegurð þessa svæðis er stórkostleg, galdrafólk og forynjur við hvern stein.sumsé nóg við að vera annað en að skemmta skrattanum, þó auðvitað verði það gert með sóma:þ
vísan góða um trékyllisvík sem samin var í kalkferð hér um árið var aldrei kláruð, svo botni nú hver sem betur getur!