ég er uppskorin, upprisin að hálfu og sýni öll merki jákvæðra batahorfa. húrra fyrir því. enn er ég þó ekki tilbúin til útivistar, svo að ég neyðist til að sleppa margt smátt og airwaves og fleiru. *grunt*
á móti kemur að ég hef eignast nýjan lífsförunaut: og stefnir í eldheitt ástarsamband okkar á milli. næst á dagskrá er að koma upp þráðlausu neti á vesturgötuna. sem gæti reyndar þýtt að ég fari aldrei aftur úr húsi. sem hljómar svo sem ekkert illa í ljósi nýjustu veðrabrigða, kuldahrolla og almennu hitafarsóþoli mínu sem hefur tekið sig upp. hef hafið rannsóknir á því hvaða skilyrði þarf fyrir að gerast ellilífeyrisþegi á spáni. er handónýt líkamlega, þoli illa kulda, elska síestusiði þeirra spánverja...sé helstu annmarka vera þá að mig vanti nokkur ár uppá. en það er auðvitað tími lýtaaðgerða, ég ætti kannski að fara og láta hrukka mig upp, soga fitu úr brjóstunum, teygja húðina til um nokkra sentimetra og lita hárið á mér grátt. hmmm. ætti að verða auðvelt að tileinka sér talsmátann sem fylgir þessum lífsstíl; jú, það er nú ótrúlegt hvað maður er, en þetta hefst nú allt saman...osfrv. *hugs* | fangor 16:13