komst að því síðustu 2. daga að ég hef ekki náð almennilegri heilsu, ég reyndi að halda í við móður mína og frænku í innkaupaferð og þurfti að leggjast fyrir seinnipart dags. hvort sem það stafar nú af líkamlegu ónýti eða andlegu óþoli fyrir langtíma búðarrápi.. í það minnsta get ég setið og hlustað á tónlist í mun lengri tíma:þ
þær mæðgur spunkhildur og saga litu við og glöddu hjartað, saga teiknaði af mér afbragðsfína batnimynd sem skreytir nú ísskápinn. takk fyrir það.
í öðrum fréttum er svo helst að vesturgatan vakir og vonar að kerry hafi sigur.*krossaputta* | fangor 01:22