og allt í einu kom helgi. fór í gær á óvænt hraungigg á rósenberg sem var með miklum ágætum. bæði uppáhaldslögin mín voru flutt eins og svavari og gumma einum er lagið. ó hvað þetta band er dásamlegt! ( og ég er ekki hlutdræg ). annað gigg í kvöld.
annars ber helst til tíðinda að við hjónakornin förum með ampop til london í fyrramálið, eldhress eftir gigg á rósenberg (takk svavar..:þ) og verðum úti í viku. þeir drengir ætla að spila 3 gigg í london og eitt í bath, þar sem okkur gefst vonandi tími til að skoða skrýtnu drúidasteinana. einnig vonast ég til að þeir verði heimsfrægir og ríkir. þá ætla ég nefnilega að gerast rithöfundur, bókmenntarýnir og allsherjarbóhem. það má samt ekki koma niður á hraungiggunum. sé fram á skemmtileg skipulagsmál eftir áramótin þar sem ég mun sjá um bókanir fyrir ampop líka eftir áramót, hægt en örugglega breytist ég í einar bárðar og verð loksins á forsíðu séð og heyrt sem umboðsmaður stjarnanna. *pósa fyrir myndavélina og alla ímynduðu aðdáendurna* skotta og ástþór, ég hlakka til að sjá ykkur!