ferðasagan verður að bíða betri tíma. vinnan kallar, ég verð að ná mér í þekkingu hið snarasta, allir að koma og versla jólabækurnar hjá mér eftir ca. viku... sit og les yfir hryllingsheima reykjavíkur í samfylgd stefáns mána. þar er ekki gott að búa. svei mér ef ég þekki ekki fólk sem hefur búið þar. og þvælist jafnvel inn ennþá. ekki langar mig að vita hversu mikið af þessari bók er byggt á raunverulegum sögum frá dóptvíburanum á hrauninu. ojbara. holl lesning amk. og ágætis skemmtan enn sem komið er. á morgun ætla ég að leggjast yfir ólaf jóhann og sakleysingjana
bætti við link hér til hliðar, annar maður sem týndist úr lífinu mínu ( var reyndar rekinn en það er önnur saga, batnandi fólki...osfrv.) óperudraugurinn | fangor 21:12