fyrsta vesenið sem ég lendi í eftir að ég gerðist umboðsmaður hefur litið dagsins ljós. litli formaðurinn fyrir austan sveik mig um bókaðan dansleik, og verður sendur reikningur í kjölfarið. ef hann fæst ekki greiddur ætlar lögfræðingurinn minn að senda hann í innheimtu. mwahaha! vei þeim sem reynir að svíkja mig um launauppbót mánaðarins. svo er auðvitað meira svekkelsi að komast ekki á seyðisfjörð í litla húsið mitt og skaflana.
þar sem austurferð féll niður verður laugardagskvöldinu eytt í góðum félagsskap, við hjónin bjóðum til morðmysteríu hinnar fyrri. boðsgestum ættu að hafa borist kort með tilheyrandi upplýsingum, reyniði að finna viðeigandi klæðnað ef mögulegt er og hafið samband ef illa gengur. við jg reynum að trixa fram það sem við getum. auðvitað er aðaláherslan á skemmtanagildið, þetta er fyrsta tilraun og við sjáum hvað setur.
ég fékk nýjan hormónaskammt í fyrradag sem hefur þau skemmtilegu áhrif að keyra upp allt systemið mitt með látum, ég var vakandi í 36 tíma, sofnaði kl. 10 í gærmorgun og svaf til 4. þetta er auðvitað grábölvað, og þarf ég að finna leiðir hið snarasta til að kippa þessu í lag. ég þarf að gera annað en sofa á daginn. hvernig svo sem maður fer að því að keyra sig út líkamlega þegar hreyfigeta er takmörkuð? meira að segja gamla fimleikadrottningin í mér lendir í stökustu vandræðum með að finna út úr því.
til að koma dagsetningum á hreint er helgin 20-23 bókuð á rósenberg, skyldumæting amk. tvö kvöld. ampop verður með tónleika á fimmtudagskvöldið, hraun með helgina. svavar á afmæli svo það verður afmælisdjamm með óvæntum gestum og aukaleikurum. komið nú endilega elskurnar mínar og leikið við okkur, ef einhver vill troða upp í afmælinu hans svavars endilega látið mig vita sem fyrst. | fangor 11:37