jæja gott fólk, þá er komið að tilkynningum vikunnar:
ampop verður á rósenberg annað kvöld ef biggi nær úr sér bansettri plágunni. það er skyldumæting hjá öllum, frítt inn og við verðum að fylla húsið. mucho importante.
á föstudaginn á svavar okkar allra afmæli, og þá er afmælishátíð á rósenberg. margt verður góðra gesta, mugison ætlar að koma, ampop ætla að mæta og fleiri munu troða upp og skemmta sér og öðrum. eins og þeir vita sem hafa komið í fyrri afmæli hjá svavari verður mikið stuð og gleði. einkar athyglivert að sjá hvað kemur út úr samkrulli hrauns,mugi og ampop. á laugardagskvöldið er svo hraun með hefðbundið gigg á sama stað.
umboðsmaðurinn er að fara yfirum af fjárhagsáhyggjum þar sem við komumst alls ekki til texas nema einhverjir vilji styrkja okkur um peninga. *krossar putta og heitir á mammon*
í kvöld eru tónleikar á næsta bar með andreu gylfa og edda lár, ég er að hugsa um að skella mér þangað ef heilsa leyfir.