nú árið er liðið í aldanna skaut, og aldrei það kemur til baka, thank god.
við litli kútur ásamt halldóru malin og þórunni grétu hentum upp menningardagskránni börnin heim á svarthvítu hetjunni í heimasveit. skemmst er frá því að segja að fullt var út úr dyrum urðu margir frá að hverfa og var látið vel af herlegheitunum. við söfnuðum saman þeim sem við mundum eftir í fljótu bragði í hvers konar listnámi eða amatörmennsku :þ og dagskráin var í 1 1/2 tíma, auk myndlistarsýninga. þarna voru um 24 manneskjur að sýna hvað þær bralla fjarri heimahögunum. okkur vantaði stóran hóp af fólki sem er í sömu erindagjörðum um víðan völl. næsta ár verður dagskráin því sett upp í valaskjálf, svo allir komist fyrir. við stofnuðum líka menningarsjóðinn bakland sem lagði 60000 krónur inn á lokaðan reikning til 10´ára í kb-banka egilsstöðum, safnar þar vöxtum og innleggjum. við munum svo úthluta úr honum árið 2015 til ungra listamanna 16-30 ára sem vilja lífga upp á menningarstarfsemina á svæðinu með einum eða öðrum hætti. svona erum við nú framsýn og sniðug.
það er mjög svo skrýtin tilfinning að vera að skipuleggja viðburð 10 ár fram í tímann. slíkt hef ég aldrei gert áður, og finnst ég rosalega fullorðin.
dvölin í sveitinni var yndisleg, letilíf og kósýheit almenn í fyrirrúmi.
ég strengi engin áramótaheit, ég er bara búin að ákveða að nýja árið verði viðburðarríkt og skemmtilegt, ég ferðist um hálfan hnöttin með hljómsveitunum mínum og ég og mínir verði almennt glöð og hamingjusöm án mikilli veikinda og vesens. hrín, hananú og vei þeim sem reynir að standa í vegi fyrir því... | fangor 02:33