ég fór á æðislega tónleika í gær, með robin nolan tríóinu á rósenberg. django-djass á heimsmælikvarða. mikið ofboðslega er langt síðan ég fór síðast á góða djasstónleika. hef sett á hlutirtilaðgera-listann minn að vera duglegri við þetta. ég hvet alla sem gaman hafa að góðum djassi að kíkja við í kvöld á seinni tónleikana þeirra. ótrúleg upplifun. ekki spillir fyrir að gestaleikari tríósins er fiðlu-trompet og allsherjarsnillingur ( hann spilar opinberlega á 9 hljóðfæri, kann svosem á hin..) sem magnar upp annars frábært band.
plottið um heimsyfirráð ampop gengur vel, sátum hádegisfund í dag og lögðum grunn að
öldungis hreint magnaðri áætlun sem við munum reyna að selja helstu fyrirtækjum. þá er bara að setja upp ´"auðvitaðátt'aðlátamighafatværmilljónir" svipinn. | fangor 13:26