hraunverjar fara ekki á ísafjörð, og því verður plan helgarinnar eftirfarandi:
í kvöld fara vesturgötuliðar á lokasýningu momento mori í kópavogi. hvet alla til að panta miða í síma 554-1985. þetta er allra síðasta sýning. eftir sýningu höldum við til auðar og sjáum idolið,ekki að ég sjái fram á óvænt úrslit. mér sýnist á öllu að hjartað mitt hún heiða detti út, ekki vegna frammistöðu heldur vegna þess að fólk virðist ekki vera að sjá hvað hún er mikil snilldarkona og getur svo vel staðið undir því að vera idol íslands. davíð og hildur berjast um efsta sætið.
laugardagskvöldið/nóttin fer svo í fyrsta formúl ársins, fagnað verður með áströlsku rauðvíni og einhverju matarkyns.
í dag kl. 3 verða ampop live í popplandi, allir að stilla viðtækin og hlusta. | fangor 12:10