það fór þó aldrei svo að mér leiddist í legunni. stofan mín fylltist flokki hæfileikara í undirbúningi fyrir inntökuprófin ógurlegu. höfðum við mikið gaman, og vonandi gagn af. það verður að segjast að inntökunefndin á erfitt starf fyrir höndum þetta árið. ég held að aldrei hafi jafn margir verðugir farið í próf í einu. alltaf einhverjir stórtalentar auðvitað, en í þetta skiptið er hópurinn gríðarlega stór. ég spái skemmtilegustu inntökuprófum í áraraðir, og jafnframt þeim erfiðustu þar sem svo margir hæfileikarar koma saman í einu. þetta verður svona eins og bandalagsskólastemming held ég. áfram amatörar!
óvænt gigg á ísafirði datt upp í hendurnar á okkur hraunverjum í gær, sólrisuball hjá menntaskólanum og skemmtilegheit. fyrsti formúll verður haldinn hjá tuma og heiðu.
umboðsmaðurinn krossar putta og vonast eftir óvæntum stuðningi í úrvinnslu snorra grétars. sjáum hvað setur. *hux* | fangor 11:48