tilhlökkunarefni dagsins er kraftflimting eddi izzards í kvöld. jibbíkóla.
undirbúningur fyrir texasferð í fullum gangi, eigum von á fréttum seinnipartinn. góðum eða ekki, kemur í ljós.
hraun spilar á kaffi vín annað kvöld, fimmtudag. allir velunnarar hvattir til að láta sjá sig. mæting um 9 leytið.
ég fór að sjá lokaæfingu á patataz, nýju verki hugleiks. það er hin besta skemmtan, óhugleisk sýning [ fyrir þá sem skilja það ] og þarft ádeiluverk. frábær frammistaða leikara og skemmtileg sviðsmynd. allir í vatnagarða 4.
er illa haldin af eirðarleisi og einbeitingarskorti, held að það sé vor í mér. þarf að fókusera á hluti og ræð ekki við neitt...*hux* | fangor 15:06