ég hef sagt líkama mínum stríð á hendur. ég og yfirnorn skráðum okkur í magadanshúsið hjá jósý. fyrsti tíminn var í gærkveldi og við þokkagyðjurnar stóðum okkur með prýði. ég hef ákveðið að dansa úr mér meinin, með illu skal illt út reka sagði einhvert fornaldarséníið. ekki svo að skilja að magadans sé af hinu illa, heldur skal ég dansa frá mér allt vit og líða vítiskvalir þar til meinin láta undan. hríni ég á og mæli um að það gangi eftir.
einnig ætlum við stöllurnar að ástunda bollywood-danslistir. sé fram á að hér sé komið tækifæri fyrir jósa frænda og litla kút að gera fyrstu íslensku bollywood-myndina. nú eða tónlistarmyndband. best að ég ræði við hljómsveitirnar mínar. held að bollywood-atriði gæti gert snilldarhlut í ákveðnu myndbandi sem er enn á hugarfósturs-stiginu.
hvað sem því líður mun mín innri gyðja blómstra á næstu vikum, ég mun dansa inn í komandi sumar með þokkafullum mjaðmasveiflum og dulúðlegu brosi. | fangor 13:31