allt að gerast með hækkandi sól. undir öllum eðlilegum kringumstæðum ætti ég að vera einbeitt og dansandi í sumrinu sem kom með rónanum á austurvöll í dag. en, skuggum slær á lífið. mig langar líka til að hanga heima hjá mér öll kvöld og spila carcassonne og drekka rauðvín með fallega fólkinu mínu. svo datt í í leikinn hans litla kúts, þrátt fyrir einbeittan baráttuvilja og tilraunir til að leiða hann hjá mér. svei attan bara.
það er því eins gott að veðrið verði með miklum ágætum á næstunni, annars kem ég mér ekki út úr húsi. | fangor 19:44