sjúkrahúsdvölin var ekki með öllu ill í þetta skiptið. ég laumaðist milli hæða á meðan verkjalyfin voru fersk og fékk að skoða litla kút. hann er dásamlega fallegur og foreldrarnir í skýunum eins og við er að búast.
ég er komin heim. ef einhver nennir að kíkja við og hella upp á kaffi er það vel þegið. | fangor 10:31