það fór þó ekki svo að ég fengi engin blóm. dásemdin hann snorgill minn færði mér blóm, geisladisk og ávaxtasafa á flöskum. áttaði mig á því að hann er að flytja í burtu eftir 3 vikur. hans verður sárt saknað, ekki einungis vegna hans frábæra persónuleika og almenns skemmtanagildis, líka vegna þess að hann kann þá list fremur öðrum að slá konum gullhamra svo þeim líði eins og prinsessum. er það náðargáfa og fáum gefin.
heimsótti konuna með grindverkinn og flotann innflutta. þáði kaffi og vínarbrauð og sé fram á góðar stundir mað þau í nágrenninu. megi samgöngur verða sem mestar og bestar.
hormónatripp hið síðara hefst á morgun með tilheyrandi óþægindum. vona að það verði alheiminum ekki til jafn mikilla vandræða og síðast þar sem ég gekk algerlega fram af samferðamönnum mínum með óhemjugangi og hinum verstu geðbólgum. takist allt sem skyldi verður hrist saman barn í glasi eftir 2 vikur og reynt að koma því til manns. við sjáum til hvort takist. ég mun leggja frjósemisgaldur hinn meiri næstu daga í nornabúð. fer svo í mál við þær evu og heiðu ef hann virkar ekki..:þ | fangor 15:48