ég er komin aftur. nauðug viljug. búin að fá menningarsjokkið yfir roki,kulda og verði á matvælum/bjór. er enn sannfærðari gastrónómískur evrópusambandssinni.
hjálpaði konunni grindgliðnuðu að pakka ásamt yfirnorn ástu og hlakka til að fá hana í nágrennið. samningar hafa tekist milli okkar um að hún fái grillið sem býr í kjallaranum mínum gegn afnotum af pallinum hennar þegar að notkun téðs grills kemur. sjáum við fram á hina bestu skemmtan þegar rannsóknarskipið leggur loks að í reykjavíkurhöfn. | fangor 23:22