ég byrjaði að vinna í dag, verð við klæðasölu hjá dressmann í musteri mammons. þeir sem eiga leið um þann stað mega endilega stinga inn trýni og kasta á mig kveðju eða tveim.
hef planlagt að bregða mér og fleirum í kvikmyndahús til að sjá kalla og sælgætisgerðina í meðförum tim burton. hef ákveðið að samsetningin dahl-burton-depp geti ekki klikkað. sjáum til.
ég bætti við nýjungum hér til hliðar: letihaugum verður hent út eftir 2 vikur hafi þeir ekki bætt ráð sitt. fluguveggurinn samanstendur af nokkrum af þeim bloggum sem ég hef les reglulega. listinn er reyndar talsvert stærri en ég nenni ekki að vera með endalaust af linkum, ég uppfæri hann frekar reglulega.
flekka er komin af fjalli, tvílembd þetta árið og ágætlega í holdum. ekki bólaði á vaninhyrndum hrút.