svavar vann trúbadorakeppnina. sem er frábært. eeeen... hljómsveitin hraun er bókuð á rósenberg í kvöld og annað kvöld. í kvöld verður hefðbundin tónleika-partýstemming og ammlisittingur litla kúts. annað kvöld hins vegar...þá verður svavar á neskaupsstað. hraun hefur spilað í ýmsum útgáfum, en aldrei án svavars. það verður því tilraunakvöld, opin söngbók, laus míkrófónn og allir vinir og velunnarar sveitarinnar eru hvattir til að koma og taka lagið. hvern hefur ekki dreymt um karókí með hljómsveit? (öðru nafni ædol-keppni..)
semsagt: laugardagskvöldið 24. september er öllum boðið að mæta og syngja með gleðisveitinni hraun. söngbók verður á staðnum. (undanskilin verða lögin stál og hnífur,minning um mann og house of the rising sun. verði brögð að því að fólk geri tilraunir í þær áttir áskilur sveitin sér rétt til að varpa viðkomandi á dyr)
annars er fyrir mestu að hafa gaman. hverjir þora?