netsamband heimilisins óvirkt í 2 daga og heimurinn er á heljarþröm. varríus útþurrkaður og upprisinn, einkatölvupóstur fólks gerður upptækur hjá hefnigjörnum sneplum, lægðir sitja um landið. til að kóróna allt saman hef ég fengið æluna.
ég er búin að æla lifur og lungum síðan 9:30 í morgun. vissi ekki að líkami minn innihéldi slík í svo miklu magni en svo lengi lærir sem lifir. ég þurfti að hætta í vinnunni rétt upp úr eitt, gagnsleysið var algert. morgunógleði minn rass. ef þetta er það sem koma skal næstu vikurnar er ég hætt við. ég þarf að setja upp leikrit! | fangor 18:52