samkvæmt hefðinni er flöskudagur í dag. ég þarf að finna eitthvað sniðugt til að setja á flöskurnar, áfengi ku illa séð með ástandinu.
ásta og ástþór ( mikið er þetta óþægileg nafnaröð..) klukkuðu mig. og ég sem vissi ekki einusinni að ég væri í leik.
1. ég nota barnastærð 35 af skóm. (þetta eru reyndar mjög praktískar upplýsingar ef einhvern skyldi langa að gefa mér skó) 2. mér fannst svo gaman í disneyworld að ég ætla þangað aftur. 3. mér finnst gaman að veiða marhnúta. 4. mér finnst rigningin góð. 5. fyrir langa löngu safnaði ég fílum. ( þessum með ranann, ekki ý-i)
þar höfum við það. heimurinn er sjálfsagt bættari fyrir vikið. | fangor 18:07