síðustu 2.dögum hef ég eytt í samvistum við foreldrana sem gerðu sér ferð til höfuðstaðarins. faðir minn til rannsóknardvalar en móðir mín til þess að þrífa skítinn undan leiklistarnemanum. það tók sólarhring. hrmpf. yfir vorn dauðan búk skal ég á gamals aldri fljúga milli landshluta þegar ég á frí frá vinnu til þess að taka til í herbergjum erfingja minna.
í óskyldum fréttum er orð vikunnar komið úr smiðju braga valdimars orðsmiðar og málfarssnillings: "fimbulglópur". krafturinn og fegurðin í þessu orði er hreint með ólíkindum. prófiði bara að nota það í setningu.
ég hef ákveðið að virkja nornakrafta mína og flýta klukkunni um tuttugu mínútur.