við hjón fórum og samlásum nýja hugleiksstykkið ásamt fríðum flokki. það er hið prýðilegasta og mér sýnist allt stefna í stórskemmtilega sýningu. konunni með grindverkinn hafa hripast niður skemmtilegheit og fynd, megi þau magnast og verða fleiri. ég hef ekki farið á samlestur síðan...tjah. ég held svei mér ekki síðan í stræti hér um árið. fann fyrir gamalkunnum fiðringi og langar meiraðsegja í ákveðið hlutverk. sem þýðir auðvitað að ég verð að fá dramakast ef ég fæ það ekki. samkvæmt hefðinni.
í óskildum fréttum hefur jón geir selt sál sína erlendu plötufyrirtæki ásamt þeim ampoppurum. erlendir plötusamningar eru...tjah...stórmerkileg fyrirbrigði. lesa smáa letrið. sem er reyndar útskýrt afþví að þetta er breskur samningur. td: "svæðið; hér er átt við allan heiminn." þetta er samningur um útgáfu á smáskífu, heimsyfirráð eru ekki alveg á næsta leyti til að fyrirbyggja allan misskilning. en skilar kannski einhverju. einhverntíman.