"þar er líka líf" stóð í leikritinu um ánamaðkinn sem vildi standa uppréttur. það er sitthvað, asni eða fífl. þó að vissulega geti einstaklingur búið yfir eiginleikum beggja.
heimilið hefur verið netsambandslaust síðustu daga en við sjáum fram á bjartari tíma í þeim efnum.
æfingar á jólaævintýri halda ótrauðar áfram og miðar vel. mig vantar dálítið upp á orkubirgðirnar til að gott geti talist, bíð spennt eftir meintu orkuflæði sem ku eiga að fylla æðar óléttra kvenna eftir fyrsta þriðjung. kæmi mér þó ekkert á óvart að það reyndist enn ein bábiljan og fáránleikafullyrðingin gerð til að telja konum trú um að ástandið sé æði. mig er jafnvel farið að gruna að sumt af þessari vitleysu sé samið af konum sem í blindri afneitun reyna að telja sér trú um að allt sé frábært, svona eftirá hafi þetta nú verið bara dásamlegt, og allt þess virði. ég skal þó játa að ég verð ósköp fegin ef satt reynist. | fangor 11:35