á æfingu kvöldsins þurfti ég að dusta rykið af kórdrengjasópraninum sem hefur staðið ónotaður árum saman. eitthvað er nú farið að slá í hann og þarfnast æfingar við ef vel á að vera. verst að engin er dr.tóta til að framkalla fögur hljóð. það hlýtur þó að bjargast allt saman. það gleymdist bara að segja mér frá því að raddböndin verða líka ólétt, og bregðast skringilega við notkun. ég vona bara að mín sjái sér leik á borði og fegri öll hljóð sem úr þeim verða kreist á næstunni.
stefni á vesturferð um helgina ásamt hraunverjum. | fangor 23:50