ég átti hræðilega söngæfingu í dag, sé fram á að kraftaverk þurfi að gerast ef röddin í mér á að berast um allan salinn með þeirri angurværð og ægifegurð sem lagið krefst. held að við þurfum prufa að breyta aftur um tóntegund, hljómsveitinni án efa til mikillar gleði.
plan þessa kvölds er svipað og gærkveldsins. sama dagskrá á rósenberg, hvet alla til að mæta klukkan 10 og hlusta á vox fox sem er þrælskemmtilegur raddkvartett. fjölbreytt lagaval og frábær flutningur hjá þeim. vonandi er fabúla betri af veikindunum og svo hún verði með í dagskrá kvöldsins.
um hálfeitt ætla ég svo að trítla ásamt mínum ektamanni sem samkvæmt grapevine er þungamiðjan í ampop ( ég er reyndar hjártanlega sammála þeim með það ;þ ) á þjóðleikhúskjallarann. ég skal verða vakandi, ó já.
[líkurnar á því eru reyndar hverfandi þar sem ástand hefur þessa andstyggðar síþreytu í för með sér. akkúrat í bili stefnir í að ég sofni fyrir framan sjónvarpið upp úr tíu. svei því alla daga *þvuh*]