í kjölfar kuldans vestur á fjörðum hefur lungnakvef og ennisholubólga sest að í líkama mínum sem er öldungis hreint frábært þar sem ég má hvorki nota lungna-né nefsterana mína sökum ástands. hætt við því að söngæfingar verði kraftlitlar næstu daga, og svei því bara.
fór í ástandsmynd í morgun og leit allt vel út, 8 vikur að baki og aðeins 4. eftir í teoretískt öryggi.
mér var boðið í kjúklingasúpu í kópavoginn, hún bragðaðist með eindæmum vel. litla kisukrílið mitt vex og dafnar og það var með semingi sem ég skildi hana eftir í móðurhúsum.
ætla að vefja mig inn í sæng og þamba te í veikri von um að bannfæra pestirnar. svo ég vitni nú í snillinginn hana evu: "veikt fólk á ekki að vera ólétt og ólétt ekki að vera veikt". skál fyrir því. | fangor 22:09