svo fréttum af búksorgum vorum sé nú áfram haldið tel ég liklegt að ælan mikla hafi verið flensuættar einhverskonar, er hún á hröðu undanhaldi þó að mér liði ennþá eins og undinni tusku eftir átökin. (7,9,13)
hlýtur það að teljast til góðra frétta og ég mun eyða deginum í að safna kröftum fyrir komandi viku. jg flýgur út á morgun til að öðlast heimsfrægð og kemur ekki aftur fyrr en á miðvikudagskvöld. af þvi leiðir að ég þarf að vera lengur í vinnunni en vanalega sem gæti orðið dálítið snúið haldi ælan velli. sóðalegt jafnvel.
á heimilinu ríkir annars almenn tilhlökkun fyrir komandi æfingatímabil jólaævintýris.
jíbbí, gaman,gaman, dönsum allir saman, kátir eins og kettir á kló.. | fangor 13:46