átti allt of langan dag í gær. langur vinnudagur, sýning og útgáfutónleikar hjá hæfileikabúntinu mínu. sem er flottastur og flinkastur eins og fram hefur komið. vitaskuldir.
verð næstu daga að gjalda fyrir það, vampýrinn sér til þess. hann krefst þess að ég sofi minnst 10 tíma, ella þurfi ég ekki að mála baugana á tomma litla. þeir eru að verða svona "au natúrell". gaman að því.
eðaldrengurinn hann loftur laumaði til mín eintaki af roklandi. það lofar svo sannarlega góðu. | fangor 21:34