það er komin lausn á fyrisjáanlegum umfram fitu/húðvanda okkar sigguláru eftir barneignir. við seljum okkur auðvitað í andlit. hverjum manni fegurðaraukandi að ganga um með rassana af okkur í framan.
einum grindkvalnum í hópnum mínum verður tíðrætt um "ljóskuna" sem hún er hjá. ekki er ég viss um að sú góða kona væri ánægð með þá nafngift. ég er svo andstyggileg í mér að ég leiðrétti hana ekki heldur hlæ illyrmislega innra með mér í hvert skipti sem hinar verða vandræðalegar á svipinn og senda svona "hver ætlar að segja eitthvað" augnarráð á milli sín.
pistil dagsins á hún raritet mín. eins og talað út úr mínu hjarta. maður hefur forheimskast svo með aldrinum að það er ekki nokkru lagi líkt. | fangor 17:43