ég var spurð að því hvaðan setningin í þriðjudagsfærslunni hér fyrir neðan væri komin, hún hljómaði svo kunnuglega. hún er komin úr míns eigins kolli, á að verða upphafssetningin í skáldsögunni sem ég ætla að skrifa þegar ég er orðin stór. þetta með kunnugleikann lofar auðvitað góðu, ef líkt gildir um tónlistarsmíð og ritun skáldskapar. ég hlýt að hafa dottið niður á smell...:þ
æfingar á jólaævintýri standa í fullum blóma. helginni verður varið í tónlistaræfingar og studíóupptökur, geisladiskurinn verður seldur á sýningum og á betri bandalagsskrifstofum landsins.
þann 14.okt næstkomandi verður ástkær eiginmaður minn, jón geir jóhannson þrítugur. blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja gleðja hann er bent á að hafa samband við mig.
gleðilegan flöskudag börnin mín, gangið hægt um gleðinnar dyr, það er trekkur.
*hmmm. smávægilegar leiðréttingar: ammli jóns er auðvitað 14.nóvember, og það ku vera 2.s í jóhannsson.*
hann ásgeir félagi minn er mikill snillingur. er að hugsa um að feta í fótspor hans til að redda fjárhagnum fyrir horn. 15 millur fyrir að kalla mig hnakkamellu... | fangor 11:00