ók trommuleikaranum til keflavíkur í dag, hann flýgur utan til frekari undirbúnings heimsfrægðar. ætlaði að eyða deginum í að jóla heimilið en datt í staðin niður í að klára roklandið hans hallgríms. það voru ekki slæm skipti. í hallgrími eigum við thor og laxness í sama manninum, hann hefur hæfileikann til að nota blæbrigði tungumálsins af snilld, orðskrýða þar sem þarf og beita lúmsku og beittu háði í ádeilum sínum á samfélagið. ólíkt sumum *hóst,hóst* drekkir hann manni ekki í orðagjálfri og lýsingarorðafljótum, hann verður heldur aldrei langdreginn. tímafirrtu nútímafólki skal líka bent á að ma'r þarf að lesa miklu færri bækur til að komast yfir heildarsafnið, sem er ge'gt kúl.
þá er bara að næla sér í næsta skammt. hef augastað á nýju bókinni hennar steinunnar sigurðardóttur. | fangor 18:56