fari það allt til helvítis bara. eyddi síðusta sólarhring inni á meðgöngudeild landspítalans. sem er reyndar hin prýðilegasta, alúðlegt starfsólk og mannsæmandi aðstaða fyrir aðstandendur. sem er meira en sagt verður um horngrýtis deildina á neðri hæðinni eins og komið hefur fram. mæli eindregið með því fyrir þá sem hyggjast láta leggja sig inn á sjúkrahús að skoða hvar deildin er staðsett. það virðist nokkuð gild regla að því hærra uppi sem deildin er þeim mun betri sé aðstaðan og starfsfólkið. furðulegt það.
innlögn hafði það í för með sér að fella þurfti niður fulla sýningu á jólaævintýrinu. sem er grábölvað. ekki hægt að henda inn aukasýningu annað kvöld, vona að úr verði bætt í vikunni. tekið skal fram að ég mun ekki missa út fleiri sýningar, þó ég þurfi að þræða hækjuna upp í rassgatið á mér til að standa upprétt. það kemur í hlut höfunda að finna ástæður fyrir því.... | fangor 23:25