martini reynist vera af vestfirskum vampýrsættum, hann drekkur úr mér blóðið. einnig virðist hann hafa horn í síðu blóðþrýstings og er slíkur í lágmarki. ekki furða þó maður líði um með loftbólur í hausnum alla daga. ó já, það er yyyyndislegt að vera óléttur. mmmhmm. nóg er af keppendum um fyrstu frænku, sýnist á öllu að hægt verði að skipta bróðurlega á milli. engir hafa hins vega lýst yfir áhuga á titli fyrsta frænda, sem mér þykir heldur leiðinlegra, það verður jú að gæta jafnréttis.
í kvöld afrekuðum við hjónin að éta allar tegundir af jólamat, for-aðal-og eftirrétti á 45.mínútum áður en við stormuðum í þjóðleikhúskjallarann til að flytja tónlistina úr hinu epíska stórvirki jólaævintýri. vona að krakkakvölin láti sér það nægja yfir helgina meðan ég næ upp járnbirgðunum sem hann stal af mér.