setning dagsins er tvímælalaust "ég hef nú látið ýmislegt úr mér í ykkar eyru og ekki allt fallegt". merkilegt hvað lítil orð eins og "út" geta verið mikilvæg. fyrsta rennsli í tjarnarbíó í dag gekk hægt og hikstandi. enn vantar allt of mikið upp á að texti skili sér og er það eiginlega dálítið stressvaldandi svona 5 dögum fyrir frumsýningu. skal skila mínum sléttum á morgun eða lýsa yfir heilabilun ella. hef jafnvel meiri áhyggjur af helvítis hækjuhokrinu, það er langt frá því að vera fullmótað þar sem hún kom inn í myndina í gær. sjúkraþjálfarinn minn dræpi mig sennilega ef hún sæi mig skakklappast svona um, enda bakið mitt um það bil að leggjast í mótmælasvelti með jólakettinum.