ég spái því að við sigga lára eignumst börn á árinu. íslenska ríkisstjórnin mun halda áfram að taka heimskulegar ákvarðanir. r-listanum verður sparkað úr ráðhúsinu og ég mund dansa vikivaka á gröf skipulagsnefndar. þó að það kosti það að ég þurfi að kjósa sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórn, ég er búin að fá nóg af þessum fíflum. herra runni og ríkisstjórn hans reyna að klóra í bakkann með gerð klúður og koma sér upp nýjum vandræðum. öllum að óvörum halda hryðjuverkamenn áfram að myrða saklaust fólk víðs vegar um heiminn. íslensk fyrirtæki munu halda áfram að leggja undir sig heiminn á kostnað íslenskra skattborgara, allt greitt með bankavöxtum og háu verði neysluvara. forsetinn fer í fleiri skíðaferðir. jón geir fær ekki íslensku tónlistarverðlaunin. ekki ég heldur. upp kemst um spillingarmál í þjóðfélaginu. starfsfólk dv fær heiftarlega iðrakveisu þegar eitthvert fórnarlamb þeirra laumar laxerolíu í kaffið á skrifstofunum. ampop munu njóta vinsælda á erlendum vettvangi. ég kemst loksins aftur til færeyja í heimsókn, verði það með leikfélögum eða tónlistartengt. þing kemur saman að nýju. ég drekk rauðvín í júní. mikið verður það nú gaman.
það gerist auðvitað sitthvað fleira en ég vil nú ekki spilla spennunni fyrir neinum. | fangor 13:40