jólasveinninn er víst til. varríus færir þau rök sem þarf fyrir því. óþarfi af dv að vera að sletta sér fram í blekkingarleikinn, börn eru jú læs. svona einhver af þeim allavega. það er öllum börnum hollt að komast að því sjálf að foreldrar þeirra eru lygamerðir hinir verstu og þeim að þykjast trúa á jólasveininn fram eftir aldri til að græða smádrasl í skóinn. heilbrigt og gott allt saman. ég geri þetta stundum sjálf. hef reyndar alveg gleymt að setja skó í gluggann þetta árið.
sammenkomst verður haldið hjá svavari á eftir þar sem jólaplatan verður sungin inn. það verður gaman. | fangor 15:52